Um þennan viðburð

Tími
16:00 - 17:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Aldur
8 ára og eldri
Börn
Föndur
Ungmenni

Tilbúningur | Blómalengjur

Fimmtudagur 14. mars 2024

Langar þig að eiga notalega stund þar sem sköpunarkrafturinn fær njóta sín í góðum félagsskap?

Föndrum saman, búum eitthvað til úr einhverju og endurnýtum alls konar. Leiðbeinandi kemur með hugmyndir, efni og áhöld og aðstoðar við tilbúninginn.

Í þessum tilbúningi ætlum við að búa til pappírsblóm og laufblöð úr gömlum bókasíðum, þræða blómin upp á band og hengja á trjágreinar.

Sæunn Þorsteinsdóttir myndlistamaður, kennari og bókavörður leiðbeinir.

Tilbúningur í Árbæ er opinn öllum en hentar best börnum eldri en 8 ára og fullorðnum á öllum aldri.

Tilbúningur fer fram í Borgarbókasafninu í Árbæ annan fimmtudag hvers mánaðar og í Borgarbókasafninu Spöng  annan miðvikudag hvers mánaðar klukkan 16:00.

Aðgangur er ókeypis og skráning er ekki nauðsynleg. 

 Viðburður á Facebook


Nánari upplýsingar veitir:
Sæunn Þorsteinsdóttir, sérfræðingur barnastarfs
saeunn.thorsteinsdottir@reykjavik.is | 411 6250