Nemendur í Fellaskóla vinna með heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Nemendur í Fellaskóla vinna með heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Um þennan viðburð

Tími
Á opnunartíma
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
-
Börn
Sýningar

Sýning | Heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna - mál okkar allra

Föstudagur 6. september 2024 - Laugardagur 14. september 2024

Verið velkomin á sýninguna Heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna - mál okkar allra!

Móðurmál, samtök um tvítyngi, hlutu styrk frá þróunarsjóði innflytjendamála fyrir verkefnið Heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna - mál okkar allra.

Verkefnið er unnið með nemendum í 5. og 6. bekk Fellaskóla. Börnin hafa fengið kynningu á Heimsmarkmiðunum og valið markmið til að vinna dýpra með, á skapandi hátt. 

Afrakstur vinnunnar er meðal annars þessi, uppskerusýning barnanna, og er fjölskyldum og öðrum áhugasömum boðið að koma til að eiga góða stund á bókasafninu með börnunum, njóta og fagna fallegu verkunum þeirra sem þau hafa lagt mikla vinnu í að skapa. 

Þar sem Heimsmarkmiðin eru til á mörgum tungumálum er hægt að skoða þau bæði á íslensku og öðrum tungumálum fyrir þau sem skilja þannig innihaldið betur. Á sýningunni verða Heimsmarkmiðin sýnileg á 35 tungumálum.

Sameiginlega samtalið í ferlinu fer fram á íslensku, því við verðum öll að geta talað saman um mikilvæg málefni á íslensku. 

Kennsluhugmyndir undir yfirskriftinni „Heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna - mál okkar allra“ verða sett fram á vef Samtakanna Móðurmáls seinna í haust.

Sýningin er staðsett inn á bókasafninu og er opin skv. opnunartíma þess.

Öll velkomin!

 

Nánari upplýsingar veitir:

Kristín R. Vilhjálmsdóttir, kennari og menningarmiðlari
kristinvil@gmail.com


Merki félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins