Svakalega sögusmiðjan

Um þennan viðburð

Tími
15:30 - 17:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
9-12 ára
Börn

Svakalega sögusmiðjan

Fimmtudagur 22. september 2022

Klúbburinn er í boði í Borgarbókasafninu Spönginni annan hvorn fimmtudag frá kl. 15:30-17:00.
Fyrsti hittingur er 22. september
Sami klúbbur verður í boði í Grófinni hina þriðjudagana á sama tíma. 

Svakalega sögusmiðjan er skapandi klúbbur fyrir krakka á aldrinum 9-12 ára sem vilja skrifa og/eða teikna og búa til sögur.

  • Lærðu að fá hugmyndir og setja þær niður á blað.
  • Lærðu að segja fyndnar og spennandi sögur með orðum og myndum.
  • Hittu fleiri krakka sem hafa sama áhugamál.

Opnað verður fyrir skráningu 25. ágúst.

Svakalega sögusmiðjan er hvetjandi vettvangur fyrir krakka sem vilja skrifa og teikna. Smiðjan er opið og skapandi rými fyrir krakka þar sem lögð eru fram verkefni en þátttakendum er frjálst að vinna úr þeim á sinn hátt. Tilgangurinn er fyrst og fremst að þátttakendur njóti þess að skapa og læri um leið fjölbreyttar leiðir til að semja sögur.

Leiðbeinendur:

Eva Rún Þorgeirsdóttir er rithöfundur og skrifar bækur og handrit að sjónvarpsefni fyrir krakka. Hún hefur skrifað bækurnar um jólasveininn Stúf, spennuseríuna um Lukku og hugmyndavélina og hugleiðslubókina Ró. Hún hefur auk þess unnið sem handritshöfundur og framleiðandi sjónvarpsþátta á KrakkaRÚV. 

Eva Rún hlaut Edduna 2021 í flokknum Barna- og unglingaefni ársins fyrir Stundina okkar og hlaut einnig Íslensku hljóðbókaverðlaunin 2022 í flokki barna og ungmennabóka fyrir hljóðbókina Sögur fyrir svefninn.

Blær Guðmundsdóttir er teiknari, barnabókahöfundur og grafískur hönnuður. Hún hefur myndlýst fjölda barnabóka þ.á.m. bækurnar um Stúf. Árið 2019 sendi hún frá sér sína fyrstu frumsömdu bók, Sipp, Sippsippanipp og Sippsippanippsippsúrumsipp – systurnar sem ætluðu sko ekki að giftast prinsum.

Blær vann FÍT-verðlaunin 2020 fyrir þessa frumraun sína og hlaut einnig tilnefningu til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar í flokki myndlýstra bóka.

Nánari upplýsingar um klúbbinn veitir:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, sérfræðingur
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6145

Merki