Borgarbókasafn Sumarsmiðjur
Borðspila smiðja fyrir börn 10-14 ára þar sem þau læra að hanna borðspil

Um þennan viðburð

Tími
10:00
Verð
Frítt
Hópur
Ungmenni
Aldur
10-14 ára
Börn

Sumarsmiðja I Borðspilasmiðja

Mánudagur 19. júní 2023 - Föstudagur 23. júní 2023

Allir geta hannað spil með rétta hugarfarinu, þar með talið þú! 

Í þessari smiðju munum fyrst og fremst spila okkur til skemmtunar og læra ný spil. En þar að auki munum við gera æfingar sem byggja upp grunnþekkingu í leikjahönnun, spila spil okkur til innblásturs og að lokum prófa hanna okkar eigin kortaspil.

Leiðbeinandi smiðjunnar, Steingerður Lóa Gunnarsdóttir, er menntaður leikjahönnuður og með einstaka þekkingu á borðspilum vegna vinnu sinnar til margra ára í Spilavinum.
 

Skráning hefst laugardaginn 29. apríl  á sumar.vala.is


Nánari upplýsingar veitir:
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur
svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is | 411-6187