
Um þennan viðburð
Stuðningur við Úkraínu
Support for Ukraine Iceland stendur fyrir viðburði laugardaginn 25. mars í Kringlunni.
Kl. 14 verður opnuð sýning á myndum eftir úkraínsk börn, sem búa í Úkraínu og úkraínsk börn í Vesturbæjarskólanum og úkraínska móðurmálsskólanum í Reykjavík. Við opnunina mun úkraínska söngkonan Tatjana Kasicz koma fram, sem og Tónlistarskóli Sigursveins og Flautukór Tónlistarskóla Kópavogs. Sýningin er á 1. hæð í Kringlunni.
Áður en sýningin opnar, eða kl. 12, verður boðið upp á samverustund á Borgarbókasafninu Kringlunni með úkraínskum bókum, leikjum og fjöri ásamt því sem hægt verður að fræðast um úkraínskar hefðir, söngva og siði. Boðið verður upp á veitingar.
Öll hjartanlega velkomin
Nánari upplýsingar veita:
Kristófer Gajowski, skipuleggjandi Support for Ukraine
supportforukraineiceland@internet.is
s.6623683
Guðríður Sigurbjörnsdóttir, deildarstjóri Borgarbókasafnsins Kringlunni
gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is
s. 69152946