
Um þennan viðburð
Tími
16:30 - 17:30
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Börn
Aldur
3 ára og eldri
Tungumál
íslenska
Börn
Sögustund | Risaeðlugengið: Kappsundið
Þriðjudagur 3. mars 2026
Gauti grameðla er ekkert gefinn fyrir sund, og alls ekki í ísköldu vatni. Þegar Georg, ótrúlega óþolandi stóri bróðir hans, skorar á þá Sölva sagtanna í kappsund getur Gauti samt ekki skorast undan. Sem betur fer bannar mamma þeirra þeim að synda í vatninu. Þar er víst risavaxið sæskrímsli á svamli...
Verið velkomin í notalega sögustund á bókasafninu þar sem lesin verður góð saga uppfull af ævintýrum. Eftir lesturinn dundum við okkur aðeins, púslum, teiknum eða litum og höfum það notalegt saman.
Sögustundirnar í Borgarbókasafninu Árbæ fara fram fyrsta þriðjudag í mánuði frá janúar til og með maí.
Öll velkomin.
Nánari upplýsingar veitir:
Agnes Jónsdóttir, sérfræðingur
agnes.jonsdottir@reykjavik.is | 411 6250