Smiðjustjórinn Jóhannes
Smiðjustjórinn Jóhannes

Um þennan viðburð

Tími
13:00 - 15:00
Verð
Frítt
Aldur
9-12 ára
Börn
Tónlist

Sögur | Tónsmíðar

Sunnudagur 2. október 2022

Staðsetning: Verkstæðið, 5. hæð.

Borgarbókasafnið í samstarfi við Sögur- Verðlaunahátíð barnanna býður börnum að læra að búa til sitt eigið lag undir leiðsögn Jóhannesar Ágústs.

Námskeiðið er þrjú skipti, sunnudagana 2., 9. og 16. október. 

Skráning er hafin á sumar.vala.is

Dagskrá:
2. október:  Farið er yfir grunn í tónlistar- og textagerð og í hugmyndavinnu. (13:00-15:00)
9. október:  Börnin vinna að tónlist sinni í minni hópum (1 tími  einhvern tíma á milli 13:00-16:30)
16. október: Börnin leggja lokahönd á lagið sitt og undirbúa það til sendingar í samkeppni Sagna (1 tími einhvern tíma á milli 13:00-16:30)
Í lok námskeiðsins eru börnin hvött til þess að taka þátt í samkeppni Sagna. Eftir áramót verða þrjú lög valin og þau börn tækifæri að fullvinna lagið sitt með pródúsent og tónlistarmönnum. Lögin þrjú verða flutt á verðlaunahátíð Sagna næsta vor í beinni útsendingu á RÚV. Það er því til mikils að vinna!

 Jóhannes Ágúst Sigurjónsson lauk B.A. námi í lagaskrifum og pródúseringu við Linnéuniversitet í Svíþjóð og starfar við tónlistargerð á Íslandi.

Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411-6146