Um þennan viðburð

Tími
11:00 - 13:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
7-10 ára
Börn

Scratch: Tölvuleikjagerð | Smiðja fyrir 7-10 ára

Laugardagur 4. nóvember 2023

Skema í HR heldur smiðju í tölvuleikjagerð með Scratch!

Nýttu sköpunargáfuna og framkvæmdu hugmyndir þínar á spennandi Scratch smiðju um tölvuleikjagerð!

Við köfum í heim forritunar og lærum að búa til eigin tölvuleiki með Scratch, byrjendavænu og sjónrænu forritunarmáli.

Þjálfarar okkar leiða þig skref fyrir skref í gegnum ferlið, kenna þér hvernig á að hanna persónur, forrita þær og bæta við spennandi hlutum eins og stigagjöf.

Hvort sem þú ert byrjandi eða hefur reynslu af forritun er þetta námskeið hentugt fyrir alla sem vilja skapa og hefja spennandi ferðalag í tölvuleikjagerð.

Skráðu þig og leyfðu sköpunargáfu þinni að ráða för þegar þú verður tölvuleikjaforritari í Scratch!  

Viðburður á Facebook

Nánari upplýsingar veitir: 

Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur

astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | s. 4116230