Bambaló
Bambaló

Um þennan viðburð

Tími
16:00 - 18:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
0-6 ára
Tungumál
íslenska
Börn

Rými fyrir höfunda | Bambaló útgáfuboð

Föstudagur 5. desember 2025

Velkomin í útgáfuhóf Bambaló!

Í tilefni útgáfu tónlistarbókarinnar „Bambaló: Fyrstu lögin okkar“ bjóðum við ykkur hjartanlega velkomin í útgáfuhóf á Borgarbókasafninu í Kringlunni föstudaginn 5. desember kl. 16–18.

Á dagskrá:

  • Notaleg tónlistarstund fyrir börnin, leidd af Sigrúnu Harðardóttur
  • Falleg föndursmiðja undir handleiðslu Linn Janssen
  • Léttar veitingar og tækifæri til að kíkja á eða kaupa bókina

Þau sem hafa keypt bókina í forsölu geta einnig nálgast sitt eintak á staðnum.
Sjá nánar um forsölu hér

Eigum saman hlýja og skapandi stund með tónlist, föndri og góðum félagsskap. 
Hlökkum til að sjá ykkur!

 

Nánari upplýsingar veitir: 

Sigrún Harðardóttir
sigrunfidla@gmail.com
 

Þessi viðburður er hluti af Rými fyrir höfunda á söfnunum okkar. Þar geta rithöfundar og skáld sem eru að gefa út bók og hafa áhuga á að standa fyrir kynningu á nýju verki og/eða eldri verkum sínum pantað rými á Borgarbókasafninu sér að kostnaðarlausu.