Um þennan viðburð

Tími
12:00 - 14:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
9-12 ára
Börn

Reykjavíkurdætur | Rappsmiðja

Laugardagur 14. október 2023

Dreymir þig um að semja þitt eigið rapplag?

Ragga Hólm og Steinunn Jóns úr Reykjavíkurdætrum gefa þátttakendum innsýn inn í sögu og eðli rapptónlistar og kenna þeim að semja og flytja sinn eigin texta. Lögð er áhersla á hugtökin inntak, flæði og flutningur.

Takmarkað pláss er á námskeiðinu og SKRÁNING því nauðsynleg, sjá neðst á síðunni.

Ragga Hólm er menntaður tómstunda- og félagsmálafræðingur og starfaði bæði sem aðstoðar forstöðumaður á frístundaheimili og félagsmiðstöð og hefur haldið margskonar námskeið fyrir grunnskólabörn, unglingadeildir og menntaskóla. Hún starfar nú sem útvarpskona, plötusnúður og rappari. Árið 2018 gaf Ragga einnig út sólóplötuna Bipolar sem fékk góðar undirtektir. 

Steinunn Jóns hefur starfað sem tónlistarkona og danskennari síðan 2011. Hún er einn af forsprökkum hljómsveitanna Reykjavíkurdætur og Amabadama. Fyrir texta sína á plötunni Heyrðu mig nú var hún tilnefnd textahöfundur ársins á íslensku tónlistarverðlaununum. Hún starfar nú einnig sem listgreina kennari í hinum ýmsu grunnskólum þar sem hún kennir bæði dans og textasmíð.  Hún hefur því mikla reynslu af því að vinna með börnum. 

Hljómsveitin Reykjavíkurdætur kom eins og stormsveipur inn í íslenskt menningarlíf fyrir um áratug og vakti strax mikla athygli fyrir hispurslausa texta, óheflaða framkomu og sérstöðu sína sem hópur kvenna í íslenskri rappsenu. Frá árinu 2013 hefur hljómsveitin komið fram í yfir 20 löndum, spilað á öllum helstu hátíðum og viðburðum hérlendis og unnið til virtra verðlauna á borð við MME verðlaunin sem Evrópusambandið veitir og viðurkenningu Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu. 

Hljómsveitin hefur síðustu misserin stefnt fleyi sínu á erlend mið en stimplaði sig rækilega inn að nýju í íslenskt tónlistarlíf með þátttöku sinni í Söngvakeppninni 2022. 

Dæturnar hafa á sínum starfsferli, gefið út þrjár plötur og fjölda smáskífa auk þess sem þær hafa staðið fyrir námskeiðum í textasmíð og rappi fyrir börn og haldið fyrirlestra bæði hérlendis og erlendis. 

Smiðjan er ókeypis.

Viðburðurinn á Facebook.

 

Nánari upplýsingar veitir: 

Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur
astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is |  411 6230