Prinsessusögustund

Um þennan viðburð

Tími
13:00 - 14:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Tungumál
pólska og enska
Börn
Föndur

Prinsessusögustund og föndur

Laugardagur 6. desember 2025

 

Snjósystur og arabíski prinsinn og prinsessan bjóða upp á töfrandi sögustund á pólsku og ensku. Að lokinni sögustund gefst tækifæri til þess að leyfa sköpunarkraftinum að njóta sín í skemmtilegri smiðju þar sem börnin búa skemmtilegt jólaskraut sem þau fá að taka með sér heim!

Á milli sögustunda verður söngur og dans og því er gott að vera tilbúinn að hreyfa sig og dansa með uppáhaldspersónunum.

Þátttaka ókeypis, öll velkomin.

Viðburðurinn hlaut verkefnastyrk frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu vegna barna á flótta á leikskóla- og framhaldsskólaaldri.

Viðburður á Facebook

Nánari upplýsingar veitir: 
Jessica Chambers, contact@prinsessur.is
prinsessur.is

Merki