
Um þennan viðburð
Myndasögugerð | Skrípó og Manga
Atla Hrafney kemur til okkar í Úlfarsárdalinn og heldur tvær skemmtilegar smiðjur.
Atla Hrafney er myndasöguhöfundur og ritstjóri með yfir áratug af reynslu í geiranum. Hún starfaði sem ritstjóri hjá rafrænu útgáfunni Hiveworks Comics á árunum 2018–2025. Atla Hrafney var stofnandi og formaður Íslenska myndasögusamfélagsins í fjögur ár.
Tvær smiðjur eru í boði og fer frjáls skráning fram hér á heimasíðu Borgarbókasafnsins.
13:00-14:30 - Skrípó 8-12 ára
Ert þú alltaf að teikna eitthvað skemmtilegt? Viltu læra að búa til fyndnar myndasögur eins og Hundmann og Grettir? Þá er Skrípó vinnustofa Ötlu Hrafney fullkomið fyrir þig!
15:00-16:30 – Manga og persónusköpun 12- 16 ára
Atla mun kanna dýpra í Manga myndasögur og fer yfir töfraheim persónusköpunar og hvernig það hefur áhrif á myndasögurnar. Að lokum munu þátttakendur fá að búa til sína eigin manga hetjur!
Ekki missa af þessu!
Nánari upplýsingar veitir:
Tinna Birna Björnsdóttir | Viðburðir