Um þennan viðburð

Tími
15:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Börn

Minecraft smiðja

Þriðjudagur 19. janúar 2021

Skráning er á allflesta viðburði Borgarbókasafnsins og er sóttvarnarreglum fylgt í hvívetna.

Sjá nánar HÉR.

Staðsetning viðburðar: OKið, á efri hæð.

Hámarksfjöldi þátttakenda: 15 (Skráning er opin, skráið ykkur hér neðst á síðunni)

Aldur: Fyrir 8-12 ára.

Ertu Minecraft-snillingur eða varstu rétt að byrja? Það skiptir ekki máli því við ætlum að halda smiðju til að læra meira á forritið. Minecraft er skemmtileg leið fyrir börn og unglinga til að skapa nýja heima í tölvunni og vinna saman. Minecraft virkar nokkurn veginn eins og legokubbar nema hvað möguleikarnir eru endalausir!

Við fáum sérfræðinga frá Skemu í HR til að kenna smiðjuna og tölvur verða í boði fyrir þátttakendur. Höfum gaman saman og lærum eitthvað nýtt í leiðinni. Smiðjan er haldin í tvö skipti, þátttakendur mega mæta báða dagana en þurfa þá að skrá sig tvisvar.

Viðburður á Facebook

Nánari upplýsingar veitir:

Vignir Árnason, bókavörður

vignir.arnason@reykjavik.is

Bækur og annað efni