Micro:bit smiðja | 9-13 ára
Micro:bit eru forritanlegar örtölvur, hannaðar til að vekja áhuga barna á forritun. Örtölvurnar hjálpa krökkum að skilja hvernig tölvur virka og með því að prófa sig áfram er bæði auðvelt og skemmtilegt að kynnast grunnhugtökum í forritun. Hægt er að forrita einfaldar skipanir, eins og myndir, hljóð og stafi, en það er líka hægt að búa til flóknari skipanir svo að örtölvan nýtist sem áttaviti eða skilaboðamóttakari, svo fátt eitt sé nefnt. Leiðbeinandi frá Skema í HR kemur á Borgarbókasafnið í Árbæ, sunnudaginn 12. september, kl.12:30, og vísar veg inn í þennan spennandi heim.
Smiðjan er ókeypis en skráning nauðsynleg hér að neðan.
Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.
Nánari upplýsingar veitir:
Katrín Guðmundsdóttir, deildarstjóri
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is | 411 6230