Krókódíll
Krókódíll

Um þennan viðburð

Tími
13:00 - 15:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Börn

Krakkafjör | sögustundir, föndur og fleira

Þriðjudagur 25. febrúar 2020

Við bjóðum leikskólabörn og foreldra sérstaklega velkomin upp á sögustundir, föndur, búninga, litabókamyndir, púsl og fleira í söfnunum á meðan verkfalli Eflingar stendur. 

Skipulögð dagskrá alla virka daga á meðan verkfalli stendur:

Grófin 13-15
Krókódílafjör | sögustund og föndur
Við kynnumst krókódíl sem þráir krakkakjöt og öðrum svolítið vatnshræddum krókódil í sögustund dagsins. Eftir sögustundina verður boðið upp á skemmtilegt krókódílaföndur.

Kringlan kl. 13-15
Eitthvað óvænt! | Sögustund og föndur
Það verður spennandi að heyra hvaða sögu barnabókavörðurinn í Kringlunni mun bjóða upp á. Eftir sögustundina verður skemmtilegt föndur eða eitthvað annað gaman.

Sólheimar kl. 13-15
Föndrað af list
Barnabókavörðurinn í Sólheimasafni ætlar að bjóða upp á skemmtilegt föndur sem hentar leikskólabörnum og fjölskyldum þeirra til að stytta sér sundir í verkfallinu.