Börn

Krakkafjör | sögustundir, föndur og fleira

Mánudagur 24. febrúar 2020

Við bjóðum leikskólabörn og foreldra sérstaklega velkomin upp á sögustundir, föndur, búninga, litabókamyndir, púsl og fleira í söfnunum á meðan verkfalli Eflingar stendur. 

Skipulögð dagskrá alla virka daga á meðan verkfalli stendur:

Grófin kl. 13-15
Lítill og stór | Sögustund og föndur
Við byrjum vikuna á því að bjóða upp á sögustund um stóra skessu og lítinn herramann. Í framhaldinu verður skemmtilegt föndur þar sem við lærum að búa til agnarlitlar fígúrur með pappírsbroti sem á augabraði verða risastórar.

Kringlan kl. 13-15
Eitthvað óvænt! | Sögustund og föndur
Það verður spennandi að heyra hvaða sögu barnabókavörðurinn í Kringlunni mun bjóða upp á. Eftir sögustundina verður skemmtilegt föndur eða eitthvað annað gaman.

Sólheimar kl. 13-15
Föndrað af list
Barnabókavörðurinn í Sólheimasafni ætlar að bjóða upp á skemmtilegt föndur sem hentar leikskólabörnum og fjölskyldum þeirra til að stytta sér sundir í verkfallinu.