Anime klúbbur Borgarbókasafnið

Um þennan viðburð

Tími
15:00 - 16:30
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
9-12 ára
Liðnir viðburðir

Anime I Klúbbur

Miðvikudagur 7. september 2022

Klúbburinn er ætlaður krökkum á aldrinum 9-12 ára sem hafa brennandi áhuga á Anime.

Í klúbbnum gerum við margt skemmtilegt eins og að gera merki, teikna, spila borðspil, cosplay, spjalla um anime svo eitthvað sé nefnt. Svo verða að sjálfsögðu skipulagðar bíósýningar, alls kyns smiðjur og bara hvað sem klúbbmeðlimum dettur í hug að gera!
Leiðbeinendur klúbbsins eru starfsmenn Borgarbókasafnsins og við leggjum okkur sérstaklega fram að taka vel á móti öllum og okkar mottó er að það sé hvergi pláss fyrir fordóma.

Það er auðvitað ekkert þátttökugjald en skráning er nauðsynleg.

Klúbburinn verður fyrsta miðvikudag hvers mánaðar 7. september, 5. október og 2. nóvember.

Opnað verður fyrir skráningu 25. ágúst á sumar.vala.is

Nánari upplýsingar:
Sigrún Antonsdóttir, sérfræðingur
sigrun.antonsdottir@reykjavik.is

 

Viðburðurinn á Facebook

Merki