Börn
Ungmenni
Klúbbur | Fyrir alla Anime aðdáendur
Miðvikudagur 3. febrúar 2021
Þessi glænýji klúbbur er ætlaður krökkum á aldrinum 13-16 ára sem hafa brennandi áhuga á Anime.
Við hittumst í Gerðubergi í Okinu ásamt leiðbeinanda og kynnum hvað klúbburinn getur haft fyrir stafni. Á Verkstæðinu í Gerðubergi er til dæmis hægt að, gera merki, prenta á boli og þrívíddaprenta svo eitthvað sé nefnt. Svo verða að sjálfsögðu skipulagðar bíósýningar, teiknismiðjur, kynningar á Anime bókum og japanskri menningu og bara hvað sem klúbbmeðlimum dettur í hug að gera næst!
Við tökum vel á móti ykkur öllum.
Það er auðvitað ekkert þátttökugjald, en vegna Covid er skráning nauðsynleg.
Sjá skráningarform hér fyrir neðan.
Nánari upplýsingar:
Hólmfríður Ólafsdóttir Verkefnastjóri
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is