![handmade bookmarks](https://borgarbokasafn.is/sites/default/files/styles/ding_secondary_large/public/title_image/event/savethepage_kako_lingua_1100x840_2023-01.jpg?itok=KVGQOdoZ)
Um þennan viðburð
Kakó Lingua | Bókamerkjagerð (föndur fyrir börn)
Búðu til þitt eigið bókamerki úr allskonar spennandi efnivið. Öll tungumál og allir aldurshópar velkomnir. Þátttaka ókeypis og allt efni á staðnum, líka heitt kakó!
Á Kakó Lingua viðburðum er lögð áhersla á fjölmenningarlegar samverustundir þvert á kynslóðir. Með því að nota sjónræna samsköpun og mismunandi tungumál í vinalegu og hvetjandi umhverfi, nýtum við færni hvers annars og tengjumst með því að hafa samskipti umfram tungumálið. Viðburðirnir fara fram á Borgarbókasafninu Kringlunni, þátttaka er ókeypis og allt efni á staðnum. Síðast, en ekki alls ekki síst, það er alltaf heitt kakó á boðstólnum og notaleg tónlist á fóninum.
Frekari upplýsingar veitir:
Martyna Karolina Daniel, sérfræðingur fjölmenningarmála
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is