Um þennan viðburð

Tími
14:00 - 14:30
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Börn

Hinsegin dagar | DragStund Starínu

Þriðjudagur 2. ágúst 2022

Verið velkomin á líflega sögustund með Starínu í Gerðubergi þar sem hinseginleikinn er í forgrunni. Starína les sögur fyrir börnin þar sem hinsegin sögupersónur koma fyrir, hvetur til spurninga og fagnar fjölbreytileikanum.

Eftir lesturinn geta börnin heilsað upp á Starínu og fengið mynd með henni.

Starína verður með þrjár sögustundir á Borgarbókasafninu á Hinsegin dögum:
Í Gerðubergi: Þriðjudaginn 2. ágúst, kl. 14:00-14:30
Í Úlfarsárdal: Föstudagskvöldið 5. ágúst, kl. 19:00-19:30 (Sögustund á náttfötunum)
Í Grófinni: Sunnudaginn 7. ágúst, kl. 15:00-15:30

Starína á Instagram.
Starína á Facebook.