
Um þennan viðburð
FULLBÓKAÐ Sumarsmiðja | Saga sem lifnar við
Hvernig skapar þú ógleymanlegar söguhetjur og undraheima?
Linda Ólafsdóttir myndhöfundur og barnabókahöfundur leiðbeinir börnum og ungmennum um hvernig þau færa líf í sögurnar sínar. Þátttakendur læra að teikna sögupersónur og skapa umhverfi þeirra og raða saman í bók sem þau útbúa annað hvort eftir sinni eigin sögu eða klassískum ævintýrum.
Linda Ólafsdóttir hefur myndlýst fjölda bóka fyrir börn og fjölskyldur. Hún er með BFA gráðu í myndlist, MFA gráðu í myndlýsingum (e. illustration), kennsluréttindi og kennir við Myndlistaskólann í Reykjavík ásamt því að teikna og skrifa frá vinnustofu sinni í Laugardalnum. Linda er höfundur bókarinnar Leika? og er meðal annarra bóka myndhöfundur að Reykjavík barnanna, Íslandsbók barnanna, Draumaþjófinum og Blíðfinni.
Smiðjan verður í fimm skipti, 12.-16. júní, og stendur yfir í tvo tíma hverju sinni.
Skráning hefst laugardaginn 29. apríl á sumar.vala.is.
Nánari upplýsingar veitir:
Natalie Colceriu, sérfræðingur
nataliejc@reykjavik.is | 411-6181