Krílahornið

Um þennan viðburð

Tími
10:30 - 11:30
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Tungumál
Öll tungumál velkomin en flest lögin eru sungin á íslensku.
Börn

Fjölskyldumorgnar | Krílastund

Mánudagur 2. desember 2024

Eigum saman notalega stund með yngstu krílunum við leik, spjall og lestur.

Klukkan 11 býður starfsmaður upp á söngstund þar sem við kynnum fyrir börnunum þessi gömlu góðu; Fröken ReykjavíkBláu augun þínÉg veit þú kemur og annarri klassík. Það er í boði að koma með óskalög, svo lengi sem gítarleikarinn kannast við lagið verður það látið flakka!

Hér skapast gott tækifæri til að kynnast öðrum með lítil börn og skiptast á sögum um lífið og tilveruna.

Bókasafnið á mikið af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum sem tengjast uppeldi og umönnun ungbarna, sem hægt er að glugga í á safninu og korthafar geta gripið með sér heim.
Svo er auðvitað mikið úrval af krílabókum til að kveikja áhuga barnanna á bókmenntum!

Á fimmtudagmorgnum eru einnig krílastundir í Grófinni en þá óma um barnadeildina Krummi krunkar úti, Lagið um litinaAllir krakkar og fleiri skemmtileg leikskólalög.
Krílastundirnar á fimmtudögum eru á sama tíma og á mánudögum.

Staðsetning: Barnadeild á 2. hæð 

Allir fjölskyldumorgnar á Borgarbókasafninu

Kynnið ykkur barnadeildir Borgarbókasafnsins
 

Nánari upplýsingar veitir:
Barbara Guðnadóttir
barbara.gudnadottir@reykjavik.is | s. 411 6100