Um þennan viðburð

Tími
10:30 - 11:30
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Tungumál
Öll tungumál velkomin en flest lögin eru sungin á íslensku.
Börn

Fjölskyldumorgnar | Krílastund

Fimmtudagur 1. ágúst 2024

Eigum saman notalega stund með yngstu krílunum við leikspjall og lestur.

Klukkan 11 býður starfsmaður upp á söngstund þar sem við syngjum saman Krummi krunkar útiLagið um litinaAllir krakkar og fleiri skemmtileg leikskólalög. 

Á fjölskyldumorgnum skapast gott tækifæri til að kynnast öðrum með lítil kríli, fá sér kaffibolla, skiptast á grautauppskriftum og ræða um nýjustu fræðin í svefnrútínu barna.

Bókasafnið á mikið af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum sem tengjast uppeldi og umönnun ungbarna, sem hægt er að glugga í á safninu og korthafar geta gripið með sér heim.
Svo er auðvitað mikið úrval af krílabókum á ýmsum tungumálum til að kveikja áhuga barnanna á bókmenntum!

Á mánudagsmorgum eru einnig krílastundir í Grófinni en þá kynnum við fyrir börnunum þessi gömlu og góðu; Fröken ReykjavíkBláu augun þínÉg veit þú kemur og annarri klassík.
Krílastundirnar á fimmtudögum eru á sama tíma og á mánudögum.

Staðsetning: Barnadeild á 2. hæð 

Allir fjölskyldumorgnar á Borgarbókasafninu

Kynnið ykkur barnadeildir Borgarbókasafnsins
 

Nánari upplýsingar veitir:
Barbara Guðnadóttir
barbara.gudnadottir@reykjavik.is | s. 411 6100