Litríkt teppi á trégólfi, púði, tuskudýr, leikföng, bækur

Um þennan viðburð

Tími
10:30 - 11:30
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Börn

Fjölskyldumorgnar | Krílahornið

Þriðjudagur 18. október 2022

Krúttleg stund í Krílahorninu.

Hittumst í Krílahorninu! Á Fjölskyldumorgnum myndast gott tækifæri til að kynnast öðrum foreldrum og skiptast á sögum um lífið, tilveruna og auðvitað börnin. Krílahornið er svæði í stöðugri þróun og tökum við gjarnan við ferskum hugmyndum frá aðstandendum ungra barna.

Hægt er að hita pela við hliðina á Krílahorninu og góð skiptiaðstaða er á salerni hússins. Ekki spillir fyrir að fullorðna fólkið getur gripið sér rjúkandi kaffidrykk í söluvagni Kaffitárs í anddyrinu. 

Fjölskyldumorgnarnir eru óformlegar samverustundir, alla þriðjudagsmorgna.

Bókasafnið á mikið til af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum sem tengjast uppeldi og umönnun ungbarna sem hægt er að grípa með sér í leiðinni. Svo er auðvitað mikið úrval af krílabókum, til að kveikja áhuga barnanna á bókmenntum!

Viðburður á Facebook.


Frekari upplýsingar veitir:
Vala Björg Valsdóttir 
vala.bjorg.valsdottir@reykjavik.is