Fjölskyldumorgnar | Krílahornið
Krúttleg stund í Krílahorninu.
Hittumst í Krílahorninu! Á Fjölskyldumorgnum myndast gott tækifæri til að kynnast öðrum fullorðnum með ungviði og skiptast á sögum um lífið, tilveruna og auðvitað börnin. Krílahornið er svæði í stöðugri þróun og tökum við gjarnan við ferskum hugmyndum frá aðstandendum ungra barna.
Alltaf heitt á könnunni fyrir þau fullorðnu og pelahitari á staðnum. Góð skiptiaðstaða er á salerni hússins.
Fjölskyldumorgnarnir eru óformlegar samverustundir, alla þriðjudagsmorgna.
Bókasafnið á mikið til af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum sem tengjast uppeldi og umönnun ungbarna sem hægt er að lesa á staðnum og korthafar geta fengið lánað heim. Svo er auðvitað mikið úrval af krílabókum, til að kveikja áhuga barnanna á bókmenntum!
Frekari upplýsingar veitir:
Vala Björg Valsdóttir
vala.bjorg.valsdottir@reykjavik.is