glove monster

Um þennan viðburð

Tími
13:30 - 15:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Börn
Tungumál

Einmana hanskaskrímsli

Sunnudagur 17. mars 2024

Átt þú stakan vettling heima? Komdu með aumingja einmana vettlinginn með þér á Kakó Lingua að hitta alla hina stöku vettlingana sem eru venjulega faldir aftast í fataskápnum. Ekki gleyma að koma með ykkar einmana vettling! Við tölum íslensku, ensku, frönsku, pólsku, spænsku en finnum leiðir til að eiga samskipti og hafa gaman á öllum tungumálum. Þátttaka er ókeypis og skreytingaefnið verður allt á staðnum!
 

Á Kakó Lingua viðburðum er lögð áhersla á fjölmenningarlegar samverustundir þvert á kynslóðir. Með því að nota sjónræna samsköpun og mismunandi tungumál í vinalegu og hvetjandi umhverfi, nýtum við færni hvers annars og tengjumst með því að hafa samskipti umfram tungumálið. Viðburðirnir fara fram á Borgarbókasafninu Kringlunni, þátttaka er ókeypis og allt efni á staðnum. Síðast, en ekki alls ekki síst, það er alltaf heitt kakó á boðstólnum og notaleg tónlist á fóninum.

Vor 2024 dagskrá: https://borgarbokasafn.is/kako-lingua

Viðburðurinn á Facebook

Frekari upplýsingar veitir:
Martyna Karolina Daniel, sérfræðingur fjölmenningarmála
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is