Börn haldandi á skilti sem segir Fíasól
Barnastund | Fíasól gefst aldrei upp

Um þennan viðburð

Tími
13:30 - 15:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Börn

Barnastund | Fíasól gefst aldrei upp

Laugardagur 16. desember 2023

Sýningar á  fjölskyldusöngleiknum um Fíusól hófust 2. desember og af því tilefni bjóðum við börn og foreldra velkomin í Spöngina laugardaginn 16. desember að hlusta á rithöfundinn Kristínu Helgu Gunnarsdóttur lesa upp úr bókinni sem söngleikurinn er byggður á, Fíasól gefst aldrei upp. Börnin sem leika Fíusól og Gauk taka svo eitt lag og þátttakendur fá að búa til sín eigin mótmælaspjöld á eftir.

Fíasól gefst aldrei upp, hún er óstöðvandi gleðisprengja, full af orku en stundum löt, skarpgreind en fljótfær og svo hugmyndarík að foreldrum hennar stendur hreinlega ekki alltaf á sama. Stelpuskottið Fíasól er fyrir löngu orðin sígild í íslenskri bókmenntasögu og á sér aðdáendur á öllum aldri.

Í vetur stígur hún loks á Stóra sviðið í Borgarleikhúsinu í nýrri leikgerð sem byggir á rómuðum skáldverkum Kristínar Helgu Gunnarsdóttur. Hér fá áhorfendur að hitta systur Fíusólar og foreldra, ömmu og afa, besta vininn Ingólf Gauk, kennarann, alla krakkana í bekknum og síðast en ekki síst lata kjölturakkann Hansínu.

Leikstjórinn Þórunn Arna Kristjánsdóttir leiðir úrvals lið leikara og stóran og kraftmikinn barnahóp í nýjum fjölskyldusöngleik með frumsaminni tónlist hins góðkunna Braga Valdimars Skúlasonar. Sýningin verður frumsýnd 2. desember en laugardaginn 16. desember bjóða Borgarleikhúsið og Borgarbóksafnið Spönginni krökkum og foreldrum að hlusta á upplestur úr bókinni, lag úr söngleiknum og taka þátt í skiltagerð í anda sýningarinnar.

Viðburðurinn á facebook

Vefur Borgarleikhússins

Nánari upplýsingar veitir: 

Katrín Guðmundsdóttir

Katrin.Gudmundsdottir@reykjavik.is | s. 4116230