AFLÝST Smiðja | Tónlistarforritun fyrir stelpur
Skráning er á þennan viðburð og er sóttvarnarreglum fylgt í hvívetna.
Staðsetning: Verkstæðið, 5. hæð
Hámarksfjöldi þátttakenda: 12 - Sjá skráningarform neðst á síðunni.
Leiðbeinendur frá Skema í HR kynna tónlistarforritið SonicPi.
Í tilefni af alþjóðlegadegi Ada Lovelace (sem var fyrsti forritarinn) munu leiðbeinendur frá Skema í HR halda smiðju og kynna tónlistarforritið SonicPi. Smiðjan er ætluð stelpum á aldrinum 10-13 ára. Þátttakendur mega taka með sína eigin tölvu eða nota tölvurnar sem verða á staðnum. Í smiðjunni munu þátttakendur bæði læra að forrita eigin tónlist og/eða forrita tónlist samda af öðrum, með nokkrum einföldum skipunum.
Þátttaka er ókeypis.
Nánari upplýsingar:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | s. 411 6100