
Um þennan viðburð
Ævintýrahöllin | Reiðhjólabændur
Reiðhjólabændur mæta með Þrautabraut fyrir hressa krakka á hjólum á Barnamenningarhátíð í Gerðubergi 25. og 26. apríl. Brautin er ætluð börnum á aldrinum 6-12 ára og eflir í gegnum skemmtilega leiki og þrautir færni barna til að hafa góða stjórn á hjólinu sínu, sem er mikilvægt öryggisatriði. Það er að sjálfsögðu skylda að vera með góðan og rétt stilltan hjólahjálm áður en lagt er af stað í þrautirnar. Einnig verður boðið upp á ókeypis ástandsskoðun hjóla, þar sem farið er yfir allt sem snýr að öryggi þess sem hjólar, þ.e. bremsur, ljós, endurskin osfrv
Ævintýrahöll Barnamenningarhátíðar hefur í gegnum tíðina flakkað á milli hverfa borgarinnar og árið 2026 mun hún fara fram í Borgarbókasafninu Gerðubergi í Breiðholti. Þar verður sannkallað líf og fjör og er aðgangur ókeypis.
Á vef Barnamenningarhátiðar er að finna heildardagskrá hátíðarinnar sem verður um alla borg.
Nánari upplýsingar veitir:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is | 868 1851