
Um þennan viðburð
Tími
11:00 - 15:00
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
öll tungumál velkomin
Börn
Ævintýrahöllin | Kubbum með lego
Laugardagur 25. apríl 2026
Býr í þér smiður, hönnuður eða verkfræðingur? Hnyklaðu vöðva sköpunargáfunnar og skerptu á ímyndunaraflinu með LEGO.
Að kubba með LEGO er frábær leið til að virkja börn til að skilja vísindatengd hugtök eins og uppbyggingu, hönnun og hugmyndaprófun. Hver kubbar eftir sinni getu og áhuga.
Ævintýrahöll Barnamenningarhátíðar hefur í gegnum tíðina flakkað á milli hverfa borgarinnar og árið 2026 mun hún fara fram í Borgarbókasafninu Gerðubergi í Breiðholti. Þar verður sannkallað líf og fjör og er aðgangur ókeypis.
Á vef Barnamenningarhátiðar er að finna heildardagskrá hátíðarinnar sem verður um alla borg.
Nánari upplýsingar veitir:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is | 868 1851