Um þennan viðburð

Tími
12:00 - 13:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Tungumál
öll tungumál velkomin
Börn

Ævintýrahöllin | Krílareif

Laugardagur 25. apríl 2026

Verið velkomin á Krílareif! Danspartý fyrir yngstu kynslóðina og fjölskyldur þeirra! DJ Sigrún Skaftadóttir sér um tónlistina sem verður við allra hæfi. Viðburðurinn er sérstaklega hannaður með þarfir yngstu þátttakendanna í huga og býður upp á rými þar sem fjölskyldur geta notið tónlistar og dansað saman.

Memmm verða gestgjafar og halda uppi stemningunni í þessu einstaka danspartýi. Memmm eru félagasamtök sem vinna að fjölskylduvænna samfélagi. Þar vinna áhugasamir einstaklingar að því að skapa tækifæri fyrir fjölskyldur til að njóta samveru og gæðastunda á fjölbreyttan hátt.

Komdu og vertu Memmm!

Ævintýrahöll Barnamenningarhátíðar hefur í gegnum tíðina flakkað á milli hverfa borgarinnar og árið 2026 mun hún fara fram í Borgarbókasafninu Gerðubergi í Breiðholti. Þar verður sannkallað líf og fjör og er aðgangur  ókeypis. 

Á vef Barnamenningarhátiðar er að finna heildardagskrá hátíðarinnar sem verður um alla borg.

 

Nánari upplýsingar veitir:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is |  868 1851