
Um þennan viðburð
Tími
13:00 - 16:00
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Börn
Tungumál
öll tungumál velkomin
Börn
Ungmenni
Ævintýrahöllin | Krakkar teikna
Laugardagur 25. apríl 2026
Komdu og teiknaðu þína mynd - saman búum við til teiknimynd! Krakkar teikna ofan á forprentaðar myndir sem allar renna saman í stutta hreyfimynd. Í teiknibásnum setjast börnin niður í hópum og láta ímyndunaraflið ráða.
Ævintýrahöll Barnamenningarhátíðar hefur í gegnum tíðina flakkað á milli hverfa borgarinnar og árið 2026 mun hún fara fram í Borgarbókasafninu Gerðubergi í Breiðholti. Þar verður sannkallað líf og fjör og er aðgangur ókeypis.
Á vef Barnamenningarhátiðar er að finna heildardagskrá hátíðarinnar sem verður um alla borg.
Nánari upplýsingar veitir:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is | 868 1851