100 ára afmæli Borgarbókasafnsins

Um þennan viðburð

Tími
11:00 - 16:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Börn
Föndur
Tónlist

100 ára afmæli | Borgarbókasafnið Spönginni

Laugardagur 15. apríl 2023

Hjartanlega velkomin á Borgarbókasafnið Spönginni í tilefni 100 ára afmælisins. Í boði er skemmtileg dagskrá fyrir unga sem aldna; heimstónlist, föndur, ratleikur, getraun og kaffi, djús og bollakaka í boði fyrir öll sem vilja njóta dagsins með okkur.

 

Í boði allan daginn frá kl. 12:00-16:00:

  • Ratleikur í barnadeildinni 
  • Getraun fyrir börn og fullorðna
     

Kl. 13:00-15:00
Föndursmiðja | Japönsk vorblóm
Við búum til blóm af úr pappír. Arnþrúður Ösp leiðbeinir. 

Kl. 13:00-16:00
Afmæliskaffi

Kl. 14.00-15:00
Gleðisveitin Mandólín
Sveitin býður upp á skemmtilega og hjartavermandi tónlist úr öllum áttum; Argentínskir tregatangóar, íslensk gullaldardægurlög, ólgandi klezmertónlist og færeyskir hringdansar eru aðeins brot af því sem sveitin lagar að sínu músíkalska nefi. 

Smellið hér til að skoða afmælisdagskrána í öllum söfnum okkar helgina 15. og 16. apríl.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Katrín Guðmundsdóttir, deildarstjóri
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is | 411 6230