
Um þennan viðburð
Fjölskyldustund í Gerðubergi
Við tökum vel á móti fjölskyldum með börn á öllum aldri. Við bjóðum upp á fjölskyldustundir þar sem við leggjum áherslu á notalega samveru, leik, lestur og spjall. Öðru hverju er boðið upp á skipulagða fræðslu sem tengist uppeldi og umönnun ungbarna. Þar skapast gott tækifæri til að kynnast öðrum foreldrum og skiptast á sögum um lífið og tilveruna. Mikið er til af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum sem tengjast uppeldi og umönnun ungbarna sem hægt er að grípa með sér í leiðinni.
Og svo er auðvitað alltaf heitt á könnunni!
Smellið hér til að sjá yfirlit yfir fjölskyldustundir í menningarhúsum Borgarbókasafnsins...
Umsjón með fjölskyldustundum í Gerðubergi hefur starfsfólk frá Þjónustumiðstöð Breiðholts og fjórum leikskólum í Efra-Breiðholti.
Upplýsingar í síma: 411 6170