Um þennan viðburð

Tími
13:30 - 14:45
Verð
Frítt
Aldur
7-12 ára
Tungumál
íslenska
Bókmenntir
Börn

Vetrarfrí | Barnabókakviss

Sunnudagur 22. febrúar 2026

Hvað heitir besti vinur Kidda Klaufa? Veistu bílnúmerið á bílnum hans Andrésar Andar? Ef þessar spurningar vekja áhuga þinn og kveikja í keppnisskapinu, þá er barnabókakvissið á Borgarbókasafninu eitthvað fyrir þig.

Boðið verður upp á stórskemmtilegt og barnvænt pöbbkviss með áherslu á barnabókmenntir. Spurningarnar eru viðráðanlegar, aðgengilegar og í valmöguleikaformi, þannig að allir geta tekið þátt án þess að þetta verði ýkja flókið. Kvissið hentar sérstaklega vel fyrir börn á aldrinum 7–12 ára og foreldrar eru að sjálfsögðu velkomnir með.

Þemað að þessu sinni eru vinsælustu erlendu barnabækurnar og kvissið er jafnframt skemmtilegt tækifæri til að kynnast bæði nýjum og gömlum sígildum bókum. Það verða vinningar í boði sem allir eiga möguleika á að hreppa! 

Þátttaka er ókeypis og engin skráning nauðsynleg – bara mæta, taka þátt og hafa gaman.

Viðburður á Facebook.

Nánari upplýsingar veitir:

Alexander Sigurðarson, sérfræðingur 

alexander.sigurdarson@reykjavik.is