Um þennan viðburð

Tími
16:15 - 18:15
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Bókmenntir

Skrifstofan | Gleðin í því smáa

Miðvikudagur 16. september 2020

Skráning er á alla viðburði Borgarbókasafnsins og er sóttvarnarreglum fylgt í hvívetna. Sjá nánar hér.

Staðsetning viðburðar: Á borðum um Kringlusafn.
Hámarksfjöldi gesta: 15

Það er vart orðum aukið að sjaldan eða aldrei hafi hæfileikinn til að finna gleðina í því smáa komið sér jafn vel og undanfarna mánuði og misseri. Á tímum kófsins finna margir ánægju í því að reyna fyrir sér í nýjum áhugamálum eða gefa sér aftur tíma til að sinna gömlum hugðarefnum. Og þar getur penni og blað fleytt okkur langt!

Borgarbókasafnið býður þér að slást í hóp annarra höfunda á ritlistarnámskeiðinu Gleðin í því smáa þar sem leikgleðin ræður einmitt för. Við beinum sjónum að hinu smáa: Við lesum saman og skrifum smátexta, örsögur, ljóð, esseyjur eða smásögur og gerum saman tilraunir og stílæfingar. Námskeiðið er haldið á Skrifstofunni, ritsmíðaverkstæði á Borgarbókasafninu Kringlunni.

Námskeiðið verður kennt með þeim hætti að geri breyttar kröfur um sóttvarnir það ómögulegt að hittast verður kennslan samstundis flutt á netið. Sömuleiðis verður gætt að hámarksfjölda með það fyrir augum að hægt verði að tryggja tveggja metra fjarlægðarmörk. Áhersla er lögð á að nemendur skili reglulega textum til kennara og fái endurgjöf á þá. Í lok námskeiðs velja nemendur einn texta sem búinn verður til útgáfu á vef Borgarbókasafnsins.

Að öllu óbreyttu verður kennt í smiðjuformi í fimm skipti, annan hvern miðvikudag, frá kl. 16.15-18.15. Námskeiðið hefst 16. september og lýkur 11. nóvember. Á milli smiðja skila nemendur textum til kennara og fá endurgjöf. Að námskeiði loknu fullvinna nemendur sinn útvalda texta og búa til útgáfu.

Skrifstofan er ritsmíðaverkstæði og samfélag skrifandi fólks. Þar getur fólk komið saman og unnið að ritstörfum sínum; einbeitt sér að skrifum í hvetjandi umhverfi; fundið ritfélaga til þess að lesa yfir texta eða skiptast á skoðunum við; sótt sér innblástur í bækur og annað efni eða fundið samfélag annarra höfunda.

Skrifstofan er opin öllum sem hafa áhuga á skrifum og ritstörfum. Nánari upplýsingar hér.

Námskeiðið er fullbókað.