Um þennan viðburð

Tími
20:00 - 22:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
-
Bókmenntir
Tónlist
Ungmenni

Safnanótt | Ljóðaslamm og uppistand

Föstudagur 6. febrúar 2026

Verið velkomin í Grófina á Safnanótt 2026 - við tökum vel á móti ykkur!
 

Safnanæturdagskrá á milli 20:00-22:00

20:00 Ljóðaslamm Borgarbókasafnsins | Sviðið er þitt
Hæfileikafólk á sviði ljóð- og sviðslistar flytja frumsamin verk

Þátttakendur kvöldsins:


Sindri Freyja Bjarnabur
Sólveig Eva Magnúsdóttir
Embla Hall
S. Andrea Ásgeirsdóttir
Nicole Naomi
Ágúst Arnhildarson 
Sidra Tul Muntaha
Brynjar Birgison
Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir
Málfríður (Guðný Inga Eiríksdóttir)
Friðberg Reynir Traustason
Marjón
Mariana Cantú Dosal
Maxine Hagan
Anna Kopacek
Þeytibrandur (Matthías Bragi Sigurðsson)

Andri Ívars  | Uppistand
Í hléinu stekkur uppistandarinn Andri Ívars upp á svið, en Andri Ívars er grínisti og gítarleikari og hefur starfað sem slíkur í tæpan áratug. Andri er þekktur fyrir að blanda tilþrifamiklum gítarleik inn í uppistandsrútínu sína sem skapar honum nokkuð afgerandi sérstöðu á Íslandi.

Jennie Egerdie | No One Else In The World Has This Problem  / The Peanut Butter Bucket

Jennie Egerdie tekur svo við af Andra.  En Jennie er kanadískur grínisti sem býr í Brooklyn, NY. Hún er höfundur hjá The New Yorker og McSweeney’s og hefur skrifað bækurnar Frog and Toad are Doing Their Best og Oh, Bother, sem báðar voru valdar meðal bestu gamanbóka ársins af New York Magazine. Hún vinnur nú að sinni þriðju gamanbók sem kemur í verslanir haustið 2026.

Úrslit Ljóðaslammsins tilkynnt
Við komumst að því hver ber sigur úr býtum í ljóðaslamminu. Sigurvegari tekur við glæsilegum verðlaunum og endurflytur verk sitt.
Við bjóðum hóp hæfileikaríkra slammara velkomin á svið. Þátttakendur stíga á stokk með frumsamin verk sín og sigurvegari verður valin í lok kvöldsins. Ljóðaslamm (Poetry Slam) felst í flutningi frumsamins ljóðs eða texta, þar sem áherslan er ekki síður á flutninginn en á ljóðið sjálft. Sagnalist og sviðslistir mætast í rafmögnuðum samruna!
 

Dómnefnd
Salka Valsdóttir (úr Reykjavíkurdætrum), Jón Magnús Arnarsson (vinningshafi Ljóðaslamms 2017) og Örvar Smárason (rithöfundur og meðlimur hljómsveitanna FM Belfast og MÚM).

Kynnir kvöldsins
Steiney Skúladóttir

Viðburður á Facebook.

Nánari upplýsingar veitir: 
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, verkefnastjóri
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6100