Um þennan viðburð
Safnanótt 2025 | Ljóðaslamm, karaókí og uppistand
Verið velkomin í Grófina á Safnanótt 2025 - við tökum vel á móti ykkur!
Safnanæturdagskrá á milli 18:00-22:00
18:00-19:45 Karaókí fjör
Söngglöð eru hvött til að spreyta sig á uppáhalds laginu sínu og önnur að láta leyndan draum rætast um að stíga á stokk. Öll karaókílög sem finna má á youtube eru í boði. Take it away!
20:00 Ljóðaslamm Borgarbókasafnsins | Sviðið er þitt
Hæfileikafólk á sviði ljóð- og sviðslistar flytja frumsamin verk
Afsakið hlé | Uppistand
Í hléinu stekkur uppistandarinn Sölvi Smárason upp á svið, en Sölvi er reyndur grínisti sem hefur komið víðsvegar fram, ásamt því að halda utan um vinsæl "Opinn mæk" kvöld í Tjarnarbíói.
Úrslit Ljóðaslammsins tilkynnt
Við komumst að því hver ber sigur úr býtum í ljóðaslamminu. Sigurvegari tekur við glæsilegum verðlaunum og endurflytur verk sitt.
Við bjóðum hóp hæfileikaríkra slammara velkomin á svið. Þátttakendur stíga á stokk með frumsamin verk sín og sigurvegari verður valin í lok kvöldsins. Ljóðaslamm (Poetry Slam) felst í flutningi frumsamins ljóðs eða texta, þar sem áherslan er ekki síður á flutninginn en á ljóðið sjálft. Sagnalist og sviðslistir mætast í rafmögnuðum samruna!
Dómnefnd
Steinunn Jónsdóttir (úr Reykjavíkurdætrum), Jón Magnús Arnarsson (vinningshafi Ljóðaslamms 2017) og Örvar Smárason (rithöfundur og meðlimur hljómsveitanna FM Belfast og MÚM.
Kynnir kvöldsins
Steiney Skúladóttir
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, sérfræðingur
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6100