
Um þennan viðburð
Rými fyrir höfunda | Útgáfuhóf | Unglingur á hafi úti eftir Þórdísi Evu Einarsdóttur
Velkomin í útgáfuhóf!
Þórdís Eva Einarsdóttir mun kynna ljóðabók sína Unglingur á hafi úti. Bókin segir sögu unglings í sorgarferli og er sönn saga höfundar. Þórdís segir frá augnablikinu þegar hún missti pabba sinn 16 ára gömul og árunum sem fylgdu á eftir. Ljóðin eru fjölbreytt hvað varðar stíl og uppsetningu og er markmið þeirra að fanga þær fjölbreyttu tilfinningar sem fylgja sorginni. Bókin er fyrsta verk höfundar.
Rými fyrir höfunda á söfnunum okkar
Rithöfundar og skáld sem eru að gefa út bók og hafa áhuga á að standa fyrir kynningu á nýju verki og/eða eldri verkum sínum geta pantað rými á Borgarbókasafninu sér að kostnaðarlausu. Höfundum er frjálst að nýta rýmið eins og þeim hentar, til dæmis fyrir upplestur (jafnvel í samráði við aðra höfunda), útgáfuhóf og kynningar.
Nánari upplýsingar veitir:
Þorgerður Agla Magnúsdóttir
verkefnastjóri | bókmenntir og lestrarhvatning
thorgerdur.agla.magnusdottir@reykjavik.is