
Um þennan viðburð
Rými fyrir höfunda | Katrín Jakobsdóttir og Þórunn Rakel Gylfadóttir
Rithöfundarnir og vinkonurnar Katrín Jakobsdóttir og Þórunn Rakel Gylfadóttir bjóða í upplestur úr bókum sínum Franski spítalinn og Mzungu í Borgarbókasafninu Kringlunni, sunnudaginn 7. desember kl.13.00 - 14.00. Bækur þeirra og meðhöfunda þeirra, Ragnar Jónasson og Simon Okoth Aora, eru báðar æsispennandi en hvor á sinn hátt.
Öll hjartanlega velkomin.
Nánari upplýsingar veitir:
Þórunn Rakel Gylfadóttir
thorunnrakel@gmail.com
Rými fyrir höfunda á söfnunum okkar
Þessi viðburður er hluti af Rými fyrir höfunda á söfnunum okkar. Þar geta rithöfundar og skáld sem eru að gefa út bók og hafa áhuga á að standa fyrir kynningu á nýju verki og/eða eldri verkum sínum pantað rými á Borgarbókasafninu sér að kostnaðarlausu.
Nánari upplýsingar veitir:
Þorgerður Agla Magnúsdóttir
verkefnastjóri | bókmenntir og lestrarhvatning
thorgerdur.agla.magnusdottir@reykjavik.is