
Um þennan viðburð
Rými fyrir höfunda | Arndís Þórarinsdóttir, Ása Marin og Margrét Höskuldsdóttir
Þér er boðið til stefnumóts við þrjá höfunda þar sem í boði verða upplestrar, sögur og góðar samræður. Þessi stund er tileinkuð sögum sem minna okkur á hversu dýrmætt það er að gleyma sér í góðri bók.
Arndís, Ása Marin og Margrét sýna með verkum sínum að það er list að skrifa góðar bækur sem hreyfa við tilfinningunum án þess að taka lífið of hátíðlega. Þetta er tækifæri til að hitta þær, heyra hvað kveikti hugmyndirnar að bókum þeirra og spjalla við þær.
Viðburðurinn er á Facebook
Nánari upplýsingar veitir:
Ása Marin
Þessi viðburður er hluti af Rými fyrir höfunda. Þar geta rithöfundar og skáld sem eru að gefa út bók og hafa áhuga á að standa fyrir kynningu á nýju verki og/eða eldri verkum sínum pantað rými á Borgarbókasafninu sér að kostnaðarlausu.