
Um þennan viðburð
Lestrargengið í 112 | Millileikur
Í desember lesum við bókina Millileikur eftir Sally Rooney. Um er að ræða sögu tveggja bræðra sem nýlega hafa misst föður sinn. Sagan lýsir hvernig þeir vinna úr tilfinningum sínum, takast á við sorgina, ástina og lífið. Bókin, sem kom út á síðasta ári, hefur hlotið mikla athygli og góða dóma gagnrýnenda. Sally Rooney gaf út sína fyrstu skáldsögu, Okkar á milli (Conversations with Friends), 2017. Í kjölfarið fylgdi sagan Eins og fólk er flest (Normal People) 2020 en gerðir hafa verið sjónvarpsþættir upp úr báðum bókunum.
Lestrargengið í 112 kemur saman einu sinni í mánuði til að spjalla og spekúlera í bókmenntum af ýmsum toga eftir jafnt íslenska sem erlenda höfunda.
Þetta misserið ætlum við þó að eingöngu að lesa þýdd skáldverk eftir írska samtímarithöfunda.
Markmiðið er að skapa vettvang til að ræða og skiptast á skoðunum um bókmenntir og eiga saman notalega stund á bókasafninu.
Við hittumst á Borgarbókasafninu Spönginni og komum okkur vel fyrir í hornsófanum á 2. hæðinni.
Leslistinn:
26. ágúst
Seint og um síðir - sögur af konum og körlum eftir Claire Keegan
30. september
Miðnæturrósin eftir Lucinda Riley
28. október
Brúðarmyndin eftir Maggie O'Farrell
25. nóvember
Strákurinn í röndóttu náttfötunum eftir John Boyne
9. desember
Millileikur eftir Sally Rooney
Leshringurinn á Facebook
Sjá yfirlit yfir alla leshringi Borgarbókasafnsins
Skráning og nánari upplýsingar:
Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is | 411 6115