LESHRINGURINN 101 - Grófinni
Notaleg skáldskapar- og kaffistund í sófanum á 5. hæð á safninu þar sem spjallað er um lestrarreynslu og upplifun af skáldverkum af ólíkum toga. Á vorönn er leshringurinn tileinkaður skáldskap Kristínar Ómarsdóttur, í tilefni af ritþingi, Sjáðu fegurð þína, um listaverk og feril skáldsins, sem verður haldið í haust 2023.
Mánudagur 13. febrúar 2023
kl. 17:10-18:00
Kristín Ómarsdóttir, Elskan mín ég dey (skáldsaga)
Kristín Ómarsdóttir, Hér (skáldsaga)
Mánudagur 6. mars 2023
kl. 17:10-18:00
Kristín Ómarsdóttir, Ljóðasafn
Kristín Ómarsdóttir, Borg bróður míns (smásögur)
Mánudagur 17. apríl 2023
kl. 17:10-18:00
Kristín Ómarsdóttir, Ástarsaga 3 (leikrit)
Kristín Ómarsdóttir, Svanafólkið (skáldsaga)
Umsjón:
Soffía Bjarnadóttir, verkefnastjóri | bókmenntaviðburðir
Öll velkomin í leshringinn en skráning nauðsynleg í gegnum netfangið: soffia.bjarnadottir@reykjavik.is
Hámarksfjöldi er 12 manns.