Um þennan viðburð

Tími
17:30 - 18:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
Íslenska
Bókmenntir
Spjall og umræður

Leshringur | Etýður í snjó

Fimmtudagur 21. nóvember 2024

VIð hittumst og ræðum Etýður í snjó eftir Yoko Tawada. Bókin segir frá þremur kynslóðum ísbjarna og fjallar um samband manna og dýra, um útlegð, fjölskyldur, aðskilnað og það að vera öðruvísi. Yoko Tawada fæddist í Tókýó en býr í Þýskalandi og skrifar bæði á þýsku og japönsku. Bókin er gefin út af Angústúru.

Hér má finna umfjöllun Ríkisútvarpsins um bókina.

Leshringurinn Sólkringlan hittist þriðja fimmtudag í mánuði kl. 17.30-18.30 í Borgarbókasafninu Kringlunni, frá september til maí. Til að skrá þig á póstlista hafið samband við umsjónarmann, sjá að neðan.

Dagskrá fyrir haustið 2024 má finna hér.

 

Umsjón og skráning:
Guttormur Þorsteinsson
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | 411 6204

Bækur og annað efni