
Um þennan viðburð
Leikhúskaffi | Hamlet
Leiksýningin Hamlet verður frumsýnd á Litla sviði Borgarleikhússins þann 31. október næstkomandi. „Að vera eða ekki vera” Hér er frægasta leikverk sögunnar – í nýjum búningi fyrir nýjar kynslóðir!
Leikhúskaffið er skemmtilegur viðburður fyrir öll sem hafa áhuga á leikhúsi og hefst á Borgarbókasafninu Kringlunni þar sem Kolfinna Nikulásdóttir leikstjóri og Sigurbjartur Sturla Atlason leikari segja frá sýningunni. Í kjölfarið verður farið samferða yfir á Litla svið Borgarleikhússins þar sem leikmyndin verður skoðuð og boðið upp á umræður og spurningar fyrir áhugasama.
Gestum leikhúskaffis býðst 10% afsláttur af miðaverði á sýninguna. Hjólastólaaðgengi er á viðburðinum.
Öll eru hjartanlega velkomin!
Um sýninguna:
Hér segir af prinsinum Hamlet sem missir föður sinn á voveiflegan hátt og missir í framhaldi af því tengsl við fjölskylduna, við ástina og við sjálfan sig. Hamlet er ein kunnasta persóna leikhúsbókmenntanna, í senn elskaður og óbærilegur, réttsýnn og syndugur, tvístígandi á mörkum sjálfsskoðunar og sjálfsréttlætingar.
Verkið rannsakar hvernig sjálfsmynd verður að sviðsetningu, hvernig ímynd og veruleiki renna saman. Á sama tíma stendur mannkynið frammi fyrir stærstu tilvistarspurningum sögunnar, hvað er satt og hvað er logið? Sannleikur eða blekking, ást eða aftenging, stríð eða bitcoin? Í þessum stórbrotna harmleik þar sem líf og dauði stíga sinn eilífa darraðadans, afhjúpar Shakespeare öfgar, spillingu, ójafnvægi og ómöguleika heiðarleikans.
Kolfinna Nikulásdóttir leikstýrði verðlaunasýningunni Ást Fedru og tekst nú aftur á við klassíkina í einu þekktasta og vinsælasta verki leikhússögunnar, sjálfum Hamlet. Leikritið er marglaga og opið til túlkunar enda hafa leikstjórar og listamenn í aldanna rás fundið þar gamla og nýja þræði og spunnið sögur sem tala til áhorfenda á öllum tímum. Kolfinna fær til liðs við sig einvala lið leikara og listrænna stjórnenda en þýðandi er meistari íslenskrar tungu, Þórarinn Eldjárn.
Nánari upplýsingar veita:
Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | 411 6204
Emelía Antonsdóttir Crivello
emelia@borgarleikhus.is | 568 5500