Aðventa
Aðventa

Um þennan viðburð

Tími
17:30 - 18:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Bókmenntir
Kaffistundir
Spjall og umræður

Leikhúskaffi | Aðventa

Þriðjudagur 21. nóvember 2023

Egill Ingibergsson leikstjóri segir gestum frá uppsetningu Borgarleikhússins, í samstarfi við leikhópinn Rauði sófinn, á verkinu Aðventa á Borgarbókasafninu í Kringlunni. Í kjölfarið verður farið yfir í Borgarleikhúsið þar sem boðið verður upp á stutta kynningu á leikmynd og annarri umgjörð sýningarinnar. Í lokin býðst gestum svo 10% afsláttur af miðum á sýninguna.

Borgarbókasafnið í Kringlunni og Borgarleikhúsið hafa boðið upp á leikhúskaffi í nokkur ár þar sem leiksýningar eru kynntar fyrir áhugasömum stuttu fyrir frumsýningu. Þessi óvenjulega uppfærslu á sígildri skáldsögu Gunnars Gunnarssonar verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu 3. desember.

„Maður þvælist með hundi og hrút um öræfin í desember, leitar að kindum, hreppir slæm veður en kemst lifandi til byggða …“ Svo segir rithöfundurinn Jón Kalman frá í formála þessarar perlu íslenskrar bókmenntasögu, Aðventu Gunnars Gunnarssonar.

Í byrjun desember 1925 hélt Benedikt Sigurjónsson á fjöll með hund og forystusauð í leit að kindum. Þeir tefjast við smölun fyrir aðra, hreppa slæm veður, leitin dregst á langinn fram yfir jól, nestið klárast og vosbúðin er mikil. Loks ná þeir til byggða, þrotnir að kröftum en með nokkrar kindur. Aðventa byggir á þessari eftirleitarferð Benedikts um Mývatnsfjöll en frásögn hans birtist í tímaritinu Eimreiðinni árið 1931 og varð Gunnari innblástur að hans frægustu skáldsögu.

Aðventa er þó svo miklu meira en saga af kindaleit í vondu veðri, því óveður geisa líka innra með fólki. Í sögunni býr harmræn ástarsaga, leit mannsins að trú og tilgangi, afturlit til ævi sem styttist í annan endann og sú sátt sem hverjum manni er nauðsyn að ná við fortíðina svo lifa megi af en farast ella. Þá er sagan óður til náttúrunnar og dýranna og þeim djúprætta kunnugleik sem líklega næst aðeins milli fjarskyldra dýrategunda.

Í uppsetningu Sviðslistahópsins Rauða sófans verður leitast við að miðla þáttum verksins – stórfenglegri náttúru, ríku innra lífi aðalsöguhetjunnar og samspilinu þar á milli. Sú óvenjulega leið er farin að hafa sýninguna að mestu án orða en þess í stað mynda tónlist, myndlist, leiklist og tækni órofa heild. Áhorfandinn dregst inn í iðandi stórhríð en sér þar hjörtu sem bjarma frá sér kærleika og ást.

Leikhúskaffið er ókeypis, öll velkomin.

Viðburðurinn á Facebook.

 

Nánari upplýsingar veitir:
Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | 411 6204

Bækur og annað efni