Um þennan viðburð

Tími
20:00 - 21:30
Verð
Frítt
Staður
við Loftskeytastöðina
Brynjólfsgata 5
107 Reykjavík
Hópur
Fullorðnir
Bókmenntir

Kvöldganga um slóðir Braga Ólafssonar

Fimmtudagur 17. september 2020

Taflmenn, sögumenn, misindismenn

Flest skáldverk Braga Ólafssonar eiga það sameiginlegt að gerast á kunnuglegum slóðum í Reykjavík. Í þessari göngu verður fetað í fótspor ýmissa persóna úr bókum hans. Kristín Svava Tómasdóttir sagnfræðingur og Guðrún Lára Pétursdóttir bókmenntafræðingur ganga með gestum  um söguslóðir í vesturbænum og staldra við hús, glugga, götur og undirgöng sem leika mikilvægt hlutverk í skáldsögum, smásögum og ljóðum. Hvaðan kemur draugurinn á fjórðu hæð til hægri? Hver hefur lokað sig inni í unglingaherberginu? Og hvar er fjöruborð einmanaleikans? 

Gangan hentar bæði eldheitum aðdáendum og nýjum lesendum og hefst við gömlu loftskeytastöðins, Brynjólfsgötu 5 (við hlið Veraldar, húss Vigdísar).

Kvöldgangan er eins konar upptaktur að ritþingi um Braga Ólafsson sem haldið verður í Borgarbókasafninu Gerðubergi 17. október 2020.

Kvöldgöngur eru viðburðaröð á vegum Borgarbókasafns, Borgarsögusafns og Listasafns Reykjavíkur. Göngurnar fara fram á fimmtudagskvöldum yfir sumarmánuðina. Þátttaka er ókeypis og eru allir velkomnir. 

Viðburðurinn á Facebook.

Hægt er að sjá yfirlit yfir kvöldgöngur sumarsins hér. 

Frekari upplýsingar veitir: 

Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar og nýsköpunar
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is | s. 411 6115

Bækur og annað efni