![](https://borgarbokasafn.is/sites/default/files/styles/ding_secondary_large/public/title_image/event/krilastundir_kringlan2.jpg?itok=D_DX6D3M)
Um þennan viðburð
Krílastundir í Kringlunni
Þriðja föstudag í mánuði eigum við saman notalega morgunstund á Borgarbókasafninu Kringlunni. Njótum samveru, spjöllum og leikum með litlu krílunum.
Hér skapast gott tækifæri til að kynnast öðrum með lítil börn og skiptast á sögum um lífið og tilveruna. Dagskráin er miðuð út frá börnum á aldrinum 0-3 ára en auðvitað eru öll velkomin.
Bókasafnið á mikið af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum sem tengjast uppeldi og umönnun ungbarna, sem hægt er að glugga í á safninu og korthafar geta gripið með sér heim.
Svo er auðvitað mikið úrval af krílabókum til að kveikja áhuga barnanna á bókmenntum!
Krílastundirnar hefjast klukkan 10:00. Athugið að safnið opnar ekki fyrr en 11:00, svo starfsmaður verður við dyrnar og hleypir ungbörnum og fylgifiskum inn.
17. janúar - FRESTAÐ
24. janúar
21. febrúar
21. mars
25. apríl
16. maí
Heitt kaffi og te í boði.
Sjáumst!
Viðburður á Facebook
Nánari upplýsingar veitir
Brynhildur Lea Ragnarsdóttir, barnabókavörður
brynhildur.lea.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411-6200