
Um þennan viðburð
Húslestur | Minnisblöð veiðimanns eftir Ívan Túrgenev
Hvernig hljómar að setjast niður á bókasafninu eftir langan dag, fá sér kaffibolla og hlusta á lifandi upplestur úr bók?
Í vor er boðið upp á huggulegar upplestrarstundir á Borgarbókasafninu í Úlfarsárdal.
Lesið er upp úr vinsælustu bókum síðasta árs og geta gestir fengið sér sæti og notið þess að hlusta á upplesturinn sem Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og fyrrum bókmenntagagnrýnandi Kiljunnar, mun sjá um. Einnig gefst kostur á léttu spjalli að lestri loknum fyrir þau sem hafa áhuga.
Í þetta skipti verður lesið upp úr Minnisblöðum veiðimanns eftir Ívan Túrgenev í þýðingu Áslaugar Agnarsdóttur. Áslaug hlaut Íslensku þýðingarverðlaunin 2025 fyrir þýðingu sína á verkinu.
Um bókina:
Eitt af meistaraverkum heimsbókmenntanna. Í bókinni fer sögumaður um sveitir Rússlands og hittir landeigendur, ráðsmenn, bændur og bóndakonur auk annarra minnisstæðra persóna. Hann lýsir þessu fólki með raunsönnum og eftirminnilegum hætti en sagan er þó ekki síður óður til rússneskrar náttúru – birkiskóganna og sveitarinnar.
Skáldjöfurinn Ívan Túrgenev kynntist snemma bágum kjörum rússneskra bænda og miskunnarleysi þeirra sem réðu yfir þeim. Hann ólst upp á landareign móður sinnar, sem þótti með eindæmum óvægin og grimm, en hún hafði yfir að ráða meira en fimm þúsund „sálum“ eins og ánauðugir bændur voru gjarnan nefndir. Reynsla Túrgenevs úr uppvextinum varð honum innblástur í þessa bók, Minnisblöð veiðimanns, sem kemur nú út í fyrsta sinn á íslensku.
Þegar bókin kom út árið 1852 var Túrgenev handtekinn og sendur í útlegð á ættaróðal sitt. Bókin er þó sögð hafa haft mikil áhrif á Aleksander II. Rússakeisara en það var hann sem steig loks það afdrifaríka skref að aflétta bændaánauðinni árið 1861. Áslaug Agnarsdóttir íslenskaði og ritaði eftirmála.
„Ótrúlega fersk og gefandi bók“ Gauti Kristmannsson, bókmenntarýnir Víðsjár á Rás 1
“Þýðingin er algert afbragð” Kolbrún Berþórsdóttir, bókmenntagagnrýnandi Kiljunnar á RÚV.
Gestum er bent á að taka með sundfötin því hægt er að skella sér í sund í Dalslaug fyrir eða eftir upplesturinn. Komum saman og eigum notalega og nærandi stund á bókasafninu.
Öll velkomin.
Nánari upplýsingar veita:
Þorgerður Agla Magnúsdóttir, verkefnastjóri | bókmenntir og lestrarhvatning
thorgerdur.agla.magnusdottir@reykjavik.is
Tinna Birna Björnsdóttir | Viðburðir
Tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is