
Um þennan viðburð
Hrollvekjur og hryllingsskrif | Hrekkjavaka
Í tilefni af Hrekkjavöku fjallar rithöfundurinn Emil Hjörvar Petersen um hrollvekjubókmenntir. Hann mun segja frá mismunandi tegundum hrollvekja, sögu þeirra og stöðu á Íslandi.
Emil Hjörvar er þekktur fyrir að skrifa fantasíur sem oft eru í myrkari kantinum, til að mynda Sögu eftirlifenda og Víghóla. Hann mun einnig fjalla um hvað hafa ber í huga við hryllingsskrif en undanfarið hefur Emil einbeitt sér að hrollvekjunni. Ó, Karítas er dulrænn tryllir sem vakti mikla athygli og nú í haust kemur út áttunda skáldsagan hans, Hælið.
Fyrirlesturinn er styrktur af Miðstöð íslenskra bókmennta og fer fram á 5. hæð í Grófarhúsinu.
Allir velkomnir.
Umsjón: Emil Hjörvar Petersen.
Frekari upplýsingar:
emilhpetersen@gmail.com
soffia.bjarnadottir@reykjavik.is